Velkomin
Könnun
Hvað gerðiru í sumar?
Vinna eins og alki
0 atkvæði

Ferðaðist innanlands
2 atkvæði

Ferðaðist utanlands
0 atkvæði

Fór bara á Þjóðhátíð í eyjum
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 2
Litla barnið mitt
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 14 maí
12.02.2009 20:33:40 / bjarney83

Smá fréttir

Ég ákvað að setja eitthvað hérna inn og vera góð :) Það er allt gott að frétta héðan. Það er voða lítið spennandi að skrifa hérna inn á bloggið því að ég og alllir aðrir eru kominir með Facebook og það tröllríður netinu hehe en já maður er á feisinu og fréttir allt þaðan og allir frétta allt af manni þaðan :)
Ég er byrjuð að vinna í Víðihlíð og er að vinna 8 til 13 og er í 50 % vinnu sem er náttúrlega algjör lúxus hehe hef aldrei unnið svona lítið er alltaf í 100 % vinnu :) en þetta er fínt svona aðeins að komast út og hitta fullorðið fólk ekki bara vera tala gúgú gaga allan daginn :) Patrekur er hjá henni Gauju sinni á meðan ég er að vinna. Við erum hjá henni oftast alveg til 16 til að halda henni félagsskap og svo að mér leiðist heldur ekki :)
Ég og Eyþór vorum að veðja upp á körfubolta leik s.s. KR og Grindavík :) ég sagði að KR myndi vinna og það rættist og ég fékk að ráða hvernig hárið á Eyþóri yrði klippt, ef Eyþór hefði unnið veðmálið þá hefði hann ráðið hvernig hann myndi klippa sig ... og það hefði ég ekki viljað því hann vildi láta raka allt af hliðunum og sítt að ofan:) ég var svo heppin að ráð og ég set inn mynd hérna til að sína ykkur



Er hann ekki sætur :)

En ég ætla að hafa þetta svona stutt í þetta skiptið :)

Síja



» 1 hafa sagt sína skoðun

25.09.2008 20:13:53 / bjarney83

:)

Hæhæ allir saman ég ákvað að skrifa niður eitthvað skemmtilegt :) eða reyna það allavegana :)
En já við fórum til spánar í viku bara ég og Eyþór. Patrekur var heima hjá ömmu sínum og öfum. Það var rosalega þægilegt að vera á spáni ekkert barn bara chill en þegar 5 dagar voru liðnir vorum við bæði virkilega mikið farin að sakna Patreks :) Við versluðum nokkrar jólagjafir og föt á Patrek. Svo lágum við líka smá í sólbaði og öfðum það næs. En já þegar við komum heim s.s. við lentum aðfaranótt föstudags kl 2 og vorum komin út úr vellinum kl 3 og keyrðum þá strax austur til mömmu og pabba því það voru réttir á föstudeginum. Patrekur var þegar kominn þangað þannig að ég og Eyþór brunuðum strax og við vorum komin þangað um 5 leytið og þá ákváðum við að leggja okkur aðeins en það var mjög stutt um 1 og hálfur tími því að Eyþór ætlaði ríðandi í réttirnar og þá var vakna hálf 7. Það var mjög gaman í réttunum Patrekur naut sín í botn og skemmti sér konunglega.

En já Patrekur er að verða 1 árs næsta laugardag og ætlum við að halda smá upp á það með að bjóða fjölskyldunni í kaffi :)

En já ég veit ekki hvað ég á að skrifa meir hérna inn á þannig að ég segji bara bæ

Endilega kvittið fyrir ykkur

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.08.2008 11:45:18 / bjarney83

Stofan mín í undirbúning











» 8 hafa sagt sína skoðun

03.07.2008 11:24:40 / bjarney83

Veit aldrei hvað ég á að skrifa hérna !!!!!!!

Hellú allir saman það er allt gott að frétta héðan úr Grindavíkinni :) Patrekur stækkar og stækkar hann er farinn að draga sig áfram á mallanum sínum en það er bara svona byrjunarstigið.VIð erum að fara í hestaferð um helgina með fjölskyldu minni ohhh hvað það verður gaman það er eiginlega alltaf gaman þessa helgi. Seinast fórum við í útileigu í Þórsmörk og það var yndislegt, steikjandi sól og blíða.  En núna erum við að fara í Hallarmúla á hestbaki þannig að þetta er í annað skiptið sem við förum í hestaferð þangað og það er bara æðislegt að vera þar. Það verður farið á 2 eða 3 bílum því minnstu krakkarnir geta nú ekki farið á hestbak þannig að það þarf að vera með þá í bilnum og svo er slatti mikill farangur sem fylgir okkur hehe ekki neitt smávægis dót sem fylgir í svona ferðir. En já ég skal reyna að blogga sem fyrst aftur og segja frá hvernig var í þessarri ferð.
En svo erum við búin að fara í eina útileigu með Patrek. VIð fórum á Laugaland með nokkrum vinum og það var alveg ótrúlega fínt að ferðast með Patrek það er bara eins og hann hafi ekki gert neitt annað en að fara í útileigu. Þessi ferð var eiginlega voða næs vorum bara í laugalandi og höfðum það voða næs.


Já best að koma því á framfæri hérna að ég er búin að fjárfesta mér í Gelnöglum þannig að ef ykkur vantar að gera neglurnar ykkar fínar þá er ég tilbúin að gera það á góðu verði s.s. ætla að byrja á því að taka 3000 kr fyrir það á meðan ég er að komast inn í þetta og svo veit maður ekki hvort að maður hækki sig um 500 kr eða 1000 kr en það kemur allt í ljós. Svo líka ef ykkur vantar að lita ykkur og plokka/vax eða bara eitthvað eins og nudd þá er ég líka alveg mjög góð í því þó ég segi sjálf frá hehe (verð að vera smá egó ekki hægt annað). Þannig að ef þið viljið þá getið þið haft samband við mig hérna eða gegnum e-mail bjarney69@hotmail.com endilega sendið mér og spurjið mig um hvað sem er sem ykkur langar að vita :) kostar ekkert að spurja hehe

En jæja best að fara að sinna Patreki
Endilega kvittið fyrir komuna ykkar síja

» 6 hafa sagt sína skoðun

02.06.2008 15:48:47 / bjarney83

Sjómannadagshelgin búin

Helgin var bara æðisleg. Byrjaði á því að ég náði í Kristinn bróðir í bæinn á fimmtudeginum, við höfðum það voða kósý um kvöldið horfðum á dumb and dumber sem er by the way enn ótrúlega fyndin Jim Carrey klikkar ekki. Á föstudeginum var Kristni púlað aðeins :) hann var látinn slá garðinn og hjálpa Eyþóri að taka til á lóðinni sem þurfti svo innilega að gera. Eyþór var svo þreyttur á föstudeginum því að hann sá um ball á fimmtudagskvöldið, Páll Óskar var að spila og gekk ballið voða vel, Eyþór var alveg vel stressaður fyrir þetta kvöld því þetta var fyrsta ballið sem hann sá alveg um... duglegi strákurinn minn. Á föstudagskvöldið þá kom Linda með tvíburana til okkar og ég og Kristinn vorum að passa þá... ég segi bara sem betur fer fékk ég ekki þríbura því þetta var soldil vinna að vera með þá alla 3 en það gekk bara ágætlega hjá okkur ef ég segi sjálf frá. Svo komu Linda, Atli, Arnþór og Hrannar seint um kvöldið.
Laugardagurinn byrjaði rólega en svo byrjaði gamanið, við fórum í skemmtisiglingu á bátnum hans Sæma tengdó með alla krakkana. Þessi sigling er á hverju ári og þetta er í fyrsta skipti sem ég fer í hana og þetta var bara mjög gaman. Allir strákarnir skemmtu sér konunglega. Patrekur var alveg gagntekin af þessum sjó hann var alveg hissa allann tíma, mjög gaman. Þegar siglingin var búin þá gengum við að leiktækjunum og Arnþór og Hrannar skemmtu sér konunglega þar. Svo þegar við vorum að fara heim þá ákváðu Kristinn og Arnþór að stökkva í sjóinn





Svo þegar við komum heim var farið í smá bolta leik



Um kvöldið var gefið strákunum fyrst og komið þeim í bólið svo grilluðum við okkur yndislegan mat og drukkið bjór, rauðvín og gos. Þegar við vorum búin að melta matinn aðeins þá fórum við út í boltaleik. Svo var bara farið að sofa.
Á sunnudeginum var morguninn tekinn rólega og eftir hádegið var farið aftur að leiktækjunum og voru fullt af tækjum og tólum til að leika sér í LInda fór meira segja í eitt tæki



Þetta var bara skemmtileg helgi.
Ég vil þakka ykkur fjölskylda góð fyrir yndislega helgi víhú

Síja


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.04.2008 21:44:00 / bjarney83

oki oki

jæja þá ákvað ég að skrifa smá blogg :) það er smá liðið síðan um páskana :) það er bara þegar fáir kvitta fyrir þá er ég lítið að nenna að blogga :(

En jæja það sem er að frétta þá er ég byrjuð að vinna... já það er bara fínt að komast aftur út á vinnumarkaðinn aftur :) gott að komast í burtu aðeins. En já það varði ekki lengi því að ég missti barnapíuna sem ætlaði að vera með hann. En já það er orðið svo dýrt að keyra á milli að við erum ekki alveg að tíma að borga í bensín og í dagmömmu þetta kostar sitt... þannig að ég ákvað að ég varð bara að hætta og vera heima :) sem mér finnst ekkert leiðinlegt :) En já heimavinnandi eftir aprílmánuðinn.

En já svo fór ég í bústað  í Grímsnesið með vinnunni.. við fórum í bústaðinn sem Linda P. á það var ógó gaman... fyrsta skiptið sem ég fór í burtu frá Patreki heila helgi very weird.... Eftir þessa helgi fékk Patreku gubbupest og niðurgang, ótrúlegt hvað mikið gubb kemur úr litlum líkama. Svo til að toppa sársaukan hjá greyjinu þá er hann að taka tönn eina framtönn uppi þannig að það er búið að vera mjög skemmtilegar nætur hérna....

En já ætla ekki að hafa þetta lengra en endilega kvittiði núna... svo ég nenni
þessu....



Smá mynd af vinnufélögum


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.03.2008 22:59:32 / bjarney83

Páskarnir búnir

úff hvað tíminn líður hratt páskarinir búnir. VIð litla fjölskyldan fórum í sveitina um páskana bara næs. Ég var með dekurdag á laugardeginum en það var mjög lítið að gera :( sem er leiðinlegt.Ég fór á hestbak 3 sinnum mmmm næs það er svo langt síðan ég fór á hestbak  seinast ég held að það hafi verið í réttunum 2006 já það er langt síðan ég veit en ég var ólétt þarna og svona.... afsakanir ég veit hehe. Patrekur fór í fjósið með pabba sínum að skoða kýrnar og í fjárhúsið með mömmu sinni og pabba og var hann hissa þegar hann sá þessi skrýtnu dýr... en ég held að honum hafi ekki leiðst þetta. Ég fór í heitapottinn með Patrek 3 sinnum og hann skemmti sér konunglega :) en hann fékk kvef en það er þess virði að fara í pottinn með litla gaurinn :) og já minns er svo stoltur .. fyrsta tönnin er að koma ... er strákurinn manns að vera stór eða hvað úfff já þetta er svko fljótt að líða það er alveg á hreinu.

Ég er að fara að byrja að vinna 1.apríl :S veit ekki alveg hvernig mér finnst um það en það verður ábyggilega bara gaman að komast aðeins á meðal fólks hehe. En já ég byrja bara að vinna 13 - 18 þannig að þetta verður piece of cake .... súkkulaðiköku hihi.

En já bara svona til skemmtunar þá ætla ég að setja smá mynd með af gullinu mínu :)



» 4 hafa sagt sína skoðun

28.02.2008 22:21:03 / bjarney83

Vinna

Pælið í því það er mánuður þangað til að ég fer að vinna aftur 8| omg er ekki að ná því að ég eigi 5 mánaða barn :) bara æðislegt. En já það sem er búið að gerast seinustu dag hmmm já seinasta föstudag ætluðum ég og Eyþór að kíkja út á lífið aðeins... ekkert heiftarlegt djamm bara kíkja smá út. Vilborg kom hún ætlaði að passa, en þegar kl var orðin 00:00 þá vaknar Patrekur og var alveg að farast í exemi sem er í andlitinu á honum og í hnakkanum eftir smá stund ákváðum við bara að vera heima út af stráknum :) hann gengur nú fyrir. Á laugardeginum fórum við með hann í keflavík til að gá hvort að það sé ekki hægt að gera eitthvað meira fyrir hann. En nei það var bara sama svarið sem við fengum og í hin skiptin s.s. bera sterakremið á hann. En sem betur fer er þetta búið að lagast. Við erum meira segja búin að krúnuraka hann því hann reif svo heiftarlega í hárið á sér því honum klægjaði svo mikið greyjið litla skinnið mitt. En já við fórum svo með hann í skoðun í dag og já stóri strákurinn minn er sko orðinn stór :) 69 cm halló vá... en já það kom líka í ljós að hann var greinilega nýbúinn að vera með eyrnabólgu í báðum eyrunum en hún var farin núna. En já það hefur líka verið að pirra hann seinustu helgi þannig að það var ekkert skrýtið að greyjið drengurinn var pirraður :)

En já heyri í ykkur :) kvittið svo líka  dúllurassarnir mínir

» 5 hafa sagt sína skoðun

17.02.2008 23:24:37 / bjarney83

Maður þarf nú að skrifa eitthvað

Nei halló allir saman :) langt síðan ég hef látið heyra í mér... en já ég er búin að vera mjög löt að skrifa hérna inn því já það er mjög lítið commentað þegar ég skrifað :( ekki gott þannig endilega kvittið svo ég nenni þessu nú.

En já strákurinn minn litli hann Patrekur er orðinn svo stór að ég er eiginlega ekki að trúa þessu.. þetta gerist voðalega hratt að maður er búin að ferma áður en maður veit af hehe. En já hann er farinn að brosa út í eitt og hann er farinn að láta sko heyra í sér.. hann öskrar og öskrar hehe ótrúlega gaman af honum. Hann er já alveg farinn að halda haus og svo lyftir höfðinu þegar hann liggur á maganum. Ég er farin að gefa honum grauta með hverr gjöf :) gengur misvel að gefa honum thíhí því hann er ekki þolinmóðastur í heimi, veit ekki hvaðan hann fær það.

Annars höfum við Eyþór það ótrúlega næs, að vera foreldrar er alveg að gera sig hehe. Við fórum um helgina í sveitina til að hakka kjöt og skera í gúllas og steikur svo að við fáum mat :) maður verður nú að vinna fyrir matinum sínum annað er ekki tekið í mál. Á meðan við vorum að vinna kjötið sváfu tvíburarnir hennar Lindu og Atla og Patrekur út í bílskúr með okkur voðalega kósí... en já svo var ekkert heitt vatn hjá þeim og var mikið vesen að fá það á. Á einum bænum var 10 gráður hiti á aðfaranótt sunnudags, þannig það var mjög kallt hjá þeim en við sluppum með að vera í svona kulda. En vonandi að þetta komist aftur í lag áður en fjölskyldan mín breytist í frostpinna hehe.

En þetta nægir í bili og ef þig kvittið eitthvað þá kannski verð ég duglegri að skrifa :)

æm át bæ

» 10 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 11:02:57 / bjarney83

Frændurnir sætu

Sætustu frændur í heim

Patrekur Breiðfjörð

 

Högni Jökull

Ásgeir Jaki


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 23:59:17 / bjarney83

Fyndnir textar

 


Put your right hand on your left sholder. Put your left hand on your right sholder! Now squeeze! There you go, that's a hug from me! Because I love you! c",)

God in heaven, god above, please protect the one I love. Written with a smile, sealed with a kiss, the one I love is reading this! ;)

Ímyndaðu þér sólina án geisla, regnbogann án lita og hafið án vatns.... finnst þér þetta óhugsandi? Mér líka. En ef ég hugsa mér lífið án þín þá er hitt smáræði ;*

I wrote your name in the sand but the see took it, I wrote your name in the wind but the storm took it, I wrote your name in my heart and there will it be 4-ever! :)

Ef þú værir síðasta hárið í rassgatinu á mér myndi ég aldrei þora að skíta af hræðslu við að missa þig! :D

Of all the friends I've ever met, you're the one I wont forget. And if I die before you do, I'll go to heaven and wait for you! ;)

One day you will ask me what's more important to me, you or my life! I say my life and you will go and leave without knowing that you are my life..!! ;*

Guð var skynsamur þegar hann setti ekki verðmerki á vini. Ég hefði aldrei haft efni á eins miklu dýrmæti og þér....

A ring is round and has no end and thats so long i will be your friend

Sannur vinur er sá sem kemur þegar veröldin hrynur, sannur vinur er sá sem tekur þér eins og þú ert, sannur vinur..........ert thu!!

Remember the M. Remember the E. Put them together and remember ME!!!

I'll care 4 u at the end of my life and I'm gonna live forever. Thank you for coming to this life, love ya! ;)

Að eiga vin er öllu betra að eiga von er nauðsynlegt, að eiga ást er undur lífsins, að þekkja þig er yndislegt :*

Sú er von mín bjarta að þú elskir mig af öllu hjarta, því þú tendrar í mér bál, þér er því gefin mín sál. Ég í lífshættu er því ég er of ástfangin af þér..... ;)

Mannstu þegar að við vorum saman í strætó og ég setti rassinn útí glugga og þú hausinn og allir héldu að við værum tvíburar! ;)

Ég hef í dag, lagt inn 365 daga umvafða ánægju og gleði, heppni, ást og góðri heilsu inn á þinn bankareikning nr.2003! Notaðu inneignina vel!:) Gleiðilegt ár:*


Þegar ég fæddist þá gaf guð mér tvo möguleika. Að vera góð/ur í rúminu eða gáfuð/gáfaður...en ég bara man ekki hvað ég valdi! :)


Þegar ég borða...líður mér vel
Þegar ég er með þér...líður mér vel
Hvað ef ég myndi borða þig ÓVART....??
SPRINGA úr hamingju! :*

Þú ert betri vinur en allt sem er,
skemmtilegri en allir hér,
traustur eins og ég hugsaði mér,
og góðvild þín hefur tök á mér,
það versta er að þú ert ekki hér

Ég vildi senda þér eitthvað yndislegt,
fallegt, sætt, gott, flott, smekklegt of sexý,
en póstmaðurinn skipaði mér
að koma mér strax útúr póstkassanum.....

Ég er ekki eins sætur og Brad Pitt!
Ég er ekki eins sterkur og Arnold,
ég er ekki eins klár og James bond,
en ég sleiki betur en Lassí....

Við hjá Eskimo-models
þökkum fyrir myndbandið sem þú sendi okkur.
Þegar loðnir leggir, lafandi brjóst og appelsínuhúð v
erður í tísku höfum við samband.

I just want you to know that
our friendship means alot to me.
If you cry, I cry. If you laugh, I laugh.
If you jump down out of a window,
I look down and I laugh again.

Another month, another year, another smile,
another tear, another winter, a summer 2,
but there will never be another U!

 


 


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.01.2008 15:55:16 / bjarney83

2008

Hæ jæja 2008 gengið í garð og hátíðarnar búnar :( ekki gaman ... en það verður gott að komast í veruleikan aftur :) við höfðum það bara æðislegt um hátíðarnar við vorum hérna í Grindavík um jólin og borðuðum heima hjá Ellu og Sæma og vá vitiði það að það voru svo margir pakkar undir jólatrénu að það er ekkert eðlilegt :) við auðvitað þurftum að opna alla pakkana fyrir Patrek og það var brjál að gera hjá okkur :) ekki leiðinlegt.. við vorum 1 og hálfan tíma að opna alla pakkana fjúff maður það var sko gaman ég þarf ekki að opna pakka fyrr en á næstu jólum því ég tók upp minn skammt af pökkum. En já svo á jóladag fórum við í Laxárdalinn og fórum í jólaboð til ömmu Lilju. Þar hittum við flest alla ættingja okkar pabba megin og var það mjög gaman ... sumir af þeim voru ekki búnir að sjá Patrek og var kysst hann og klipið.

Þann 27. des fórum við með Patrek í skoðun og hann er sko orðinn stór fjúff maður hann er orðinn 64 cm og 6940 gr minn stóri strákur :) en það kom líka í ljós að hann er með eyrnabólgu í vinstra eyra :( s.s. hann er búinn að vera á sýklalyfjum í 9 daga seinasti dagurinn á morgunn :) Svo þann 29. des fórum við aftur í sveitina og vorum þar yfir áramótin, ótrúlega næs að vera þar kósý og kósý :)

En jæja hef ekki meir að segja en þetta :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 10:53:42 / bjarney83

JÓL

GLEÐILEG

JÓL

ALLIR SAMAN


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.11.2007 14:01:04 / bjarney83

Hóhóhó

Hæhæ allir saman og eru allir komnir í jólaskap??? ég er komin í smá jólaskap :) víhú en já ég er búin að skreyta smá, ekki mikið bara pínu en ég ætla að láta Eyþór fara að sækja restina af jólaskrautinu svo að ég geti klára:)  En já ég er líka búin með jólakortin :) var búin með þau í byrjun nóv og svo er ég búin að pakka inn 2 jólagjöfum hehe úff mín er svo dugleg er það ekki '???? Ég get bara ekki beðið eftir jólunum :) Hún Vilborg er meira segja búin að kaupa jólasveinabúning á Patrek :) hann verður svo sætur :)

 En Patrekur er orðin svo stór, ég komst að því þegar ég fór í heimsókn til Söndru vinkonu :) hún á 3 vikna strák og hann er svo lítill miðað við Patrek :) maður sér virkilega hvað Patrekur er búinn að stækka mikið þegar maður sér svona lítið barn :) en já þau stækka víst og gera það hratt því miður :( en það er ekki hægt að hafa þau lítil forever :) Patrekur er farinn að hjala svo mikið og brosar alveg út í eitt ótrúlega gaman að fíflast í honum :) núna fær maður einhver viðbrögð því áður þá horfði hann bara á mig eins og ég væri eitthvað skrýtin :) kannski að ég er eitthvað skrýtin en ekki svona mikið hehe .)

 

En jæja ekkert meira í bili :) bleble


» 7 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 14:16:54 / bjarney83

Jólin að koma

Hæhó jólin eru bara að koma og ég búin að kaupa 2 jólagjafir :) ótrúlega dugleg :) og ég er líka að vera búin að skrifa öll jólakortin :) úfff ótrúlega dugleg hehe en já á nokkur jólakort eftir :) en ég ætla ekki að senda þau út strax hehe þannig að þið þurfið ekkert að óttast að þið séuð að fara að fá jólakort í bráð hehe..... en já þegar litli gaurinn er út í vagni þá verður maður að nýta tíman og gera eitthvað ekki nenni ég að laga til alltaf :) það er ekki endalaust skítugt hjá mér :)... mig hlakkar bara til að fara að skreyta þetta blessaða hús en já það er bara búið að vera ótrúlega næs hjá okkur um helgina :) fórum í sveitina og ég í pottinn og Eyþór fékk að sofa :) hann er búinn að vera að vinna eins og brjálæðingur og hann hafði gott að því að komast úr símasambandi og slaka á, ekki gerir hann það hérna heima :S.... en það var mjög gaman að komast í sveitina :) Linda og tvíburarnir voru þarna líka og Guðni og Eydís kíktu þannig að þetta var ótrúlega kósý.......... á laugardagskvöldið bauð Linda og Atli okkur öllum í mat og þetta var alveg yndislegur matur :) takk æðislega fyrir mig og mína:)

En annars þá dafnar hann Patrekur bara vel hann er orðinn 58 cm og 5250 gr :) já hann er að stækka og stækka :) áður en maður veit af þá er hann farinn að hlaupa um hehe en vonum að hann bíði aðeins með það tíhí :) en ég æta að láta eina sæta mynd fylgja með af Patreki :)

Takk fyrir mig og bless


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 45195
Klukkan
Húsið mitt í framkvæmd